31 október 2007

Ofurbloggarinn

Ja eg verd ad vidurkenna thad ad eg er nu sennilega latasti og lelegasti bloggari sem sogur fara af.

Thad verdur seint sagt um San Jose ad hun se falleg borg. Lenti thar a fostudegi fyrir rumri viku og gisti thar i eina nott en ferdinni var heitid til Puerto Viejo sem stendur vid Karabiska hafid og ekki langt fra landmaerum Panama.
Okuferdin atti ad taka 4 tima en endadi i 5 timum. Vegakerfid her er nu ekkert til ad hropa hurra fyrir og umferdinn a thessar leid med mesta moti, serstaklega af storum bilum med tengivagna en nordur af Puerto Viejo er Puerto Limon sem hefur ad geyma adal utflutningshofn landsins.

Thetta var frekar mikid leti lif tharna og baerinn/thorpid halfgerdur svefnbaer.
For i skipulagda snorkl ferd vid coral rif og brann ad sjalfsogdu all hressilega a bakinu. Hefdi gjarnan vilja vera med vera med vatnshelt box fyrir myndavelina til ad taka myndir nedansjafar. Endadi med thvi ad kaupa mer minar eigin chep graejur til ad snorkla en var frekar oheppin med vedur, sjorinn gruggugur og skygni litid sem ekkert. Leigdi mer hjol i einn dag og var ad sjalfsogdu hel aumur i esinu og let thar vid sitja og leigdi mer thaegilegri fararskjota eda Scooter og theistist um fjoll og firnindi a thvi.
Annars gerdi madur nu litid annad en ad vera a strondinni og bada sig i sjonum thannig ad ekkert spennandi bar a goma. Tok faeinar myndir en get thvi midur ekki upplotad neinu thar sem ad eg hef gladad myndavelasnurunni einhverstadar.

Nu er eg staddur i Monteverde til ad skoda Monteverd Cloud forest og Santa Elena Cloud forest sem eru i rumlega 1700m haed. Thetta er i raun regnskogar en voru nefndir thetta vegna haedarinnar sem their eru i og vegna skyjanna sem fara i gegnum tha eins og nafnid gefur til kynna.
Aetla staldra her vid i nokkra daga og skoda mig um og sja hvort eg nai ekki nokkrum skemmtilegum myndum fyrir ykkur.

Thar til sidar
Aegir ofurbloggari

12 október 2007

Tímabært blogg

Þessar 2 vikur á Costa Rica voru fljótar að líða.

Skólinn var með öðru sniði en í Argentínu. Byrjaði klukkan 8 með kennslu í einn og hálfan tíma, hálftíma pása, kennsla í einn og hálfan tíma og lauk svo 11:30.
Boðið var upp á heitan hádegisverð fyrir litlar 160kr.
Það voru 9 nemendur í skólanum og þar af 8 þýskumælandi. Ég ákvað að segja öllum og þar með talið kennurunum líka að ég talaði og skildi eingöngu íslensku og takmarkaða spænsku. Þannig að þessar tvær vikur í skólanum talaði enginn við mig og stóð mér nú slétt á sama. Held ég hafi lært meir á þessum tveim vikum á Costa Rica en ég lærði nokkurn tíman í Argenínu.

Klukkan 6 á morgnana er orðið bjart og heiðskýrt og 25-30° hiti kominn á mælinn.
Upp úr hádegi brestur á með skúrum og þrumum svo styttir upp og byrjar svo aftur.
Svon er þetta alla daga hér. Regnhlíf er algjört möst.
Hér er menn fangar síns eigin heimilis, girtir af med rimlum og gaddavír. Hendi inn mynd af því síðar.

Fór í 2 daga rafting ferð sem byrjaði á laugardags morgni. Var sóttur heim, keyrðum í einn og hálfan, fengum eðal morgunverð, keyrðum í klukkutíma í viðbót. Fyrri dagurinn byrjaði rólega og var meira æfing fyrir næast dag. Sigldum í klukkutíma en komum þá að lítilli húsaþyrpingu við ána með nokkrum bungalowum sem voru draumi líkast. Fengum hádegisverð og fórum í smá göngutúr en þurftum að snúa við vegna rigningar og engin smá rigning það þannig að það var nú lítið annað að gera en að hella svolítið hressilega í sig.
Vaknaði merkilega hress á sunnudagsmorgun skellti mér í göngutúr að litlum fossi og fékk mér sundsprett og aftur til baka til að beljga mig út af frönskum pönnukökum.
Var orðin býsna spenntur fyrir ferðinni niður ánna þar sem rennslið hafði vaxið töluvert eftir rigningu gærdagsins.

Ferðin tók um 3 tíma seinni daginn og var nóg af actioni.
Kíkið á myndirnar ef þið hafið ekki þegar séð þær.

Frá mér að segja í dag að þá er ég staddur í Miami Florida að hitta bróður minn og dóttur hans. Kom hingað í gær og fer aftur á morgun niður til Houston Texas en þar þarf ég að sinna nokkrum erendum fram að 19otk en þá flýg ég aftur niður til Costa Rica.

Ætla skella mér á ströndina í karabíska hafinu í 7 daga og sleikja sólina.
Ekki er komið á hreint hvað ég geri svo eftir það.
Er að bíða eftir e-maili frá local mömmu minni á Costa Rica um hvort ég fái volunter work í einhverju national park í norð-austur hluta landsins, ekki langt frá landmærum Nigaragúa. Ef ekkert verður úr því að þá ætla ég að fara fikra mig hægt niður á við til Panama.


Kveðja Ægir
e.s.
Ef Dóri frændi er að lesa þetta að þá vildi ég nú bara láta þig vita að við kíktum á tútturnar fyrir þig og fengum okkur eina könnu :-}.