Skólinn var með öðru sniði en í Argentínu. Byrjaði klukkan 8 með kennslu í einn og hálfan tíma, hálftíma pása, kennsla í einn og hálfan tíma og lauk svo 11:30.
Boðið var upp á heitan hádegisverð fyrir litlar 160kr.
Það voru 9 nemendur í skólanum og þar af 8 þýskumælandi. Ég ákvað að segja öllum og þar með talið kennurunum líka að ég talaði og skildi eingöngu íslensku og takmarkaða spænsku. Þannig að þessar tvær vikur í skólanum talaði enginn við mig og stóð mér nú slétt á sama. Held ég hafi lært meir á þessum tveim vikum á Costa Rica en ég lærði nokkurn tíman í Argenínu.
Klukkan 6 á morgnana er orðið bjart og heiðskýrt og 25-30° hiti kominn á mælinn.
Upp úr hádegi brestur á með skúrum og þrumum svo styttir upp og byrjar svo aftur.
Svon er þetta alla daga hér. Regnhlíf er algjört möst.
Hér er menn fangar síns eigin heimilis, girtir af med rimlum og gaddavír. Hendi inn mynd af því síðar.
Fór í 2 daga rafting ferð sem byrjaði á laugardags morgni. Var sóttur heim, keyrðum í einn og hálfan, fengum eðal morgunverð, keyrðum í klukkutíma í viðbót. Fyrri dagurinn byrjaði rólega og var meira æfing fyrir næast dag. Sigldum í klukkutíma en komum þá að lítilli húsaþyrpingu við ána með nokkrum bungalowum sem voru draumi líkast. Fengum hádegisverð og fórum í smá göngutúr en þurftum að snúa við vegna rigningar og engin smá rigning það þannig að það var nú lítið annað að gera en að hella svolítið hressilega í sig.
Vaknaði merkilega hress á sunnudagsmorgun skellti mér í göngutúr að litlum fossi og fékk mér sundsprett og aftur til baka til að beljga mig út af frönskum pönnukökum.
Var orðin býsna spenntur fyrir ferðinni niður ánna þar sem rennslið hafði vaxið töluvert eftir rigningu gærdagsins.

Ferðin tók um 3 tíma seinni daginn og var nóg af actioni.
Kíkið á myndirnar ef þið hafið ekki þegar séð þær.
Frá mér að segja í dag að þá er ég staddur í Miami Florida að hitta bróður minn og dóttur hans. Kom hingað í gær og fer aftur á morgun niður til Houston Texas en þar þarf ég að sinna nokkrum erendum fram að 19otk en þá flýg ég aftur niður til Costa Rica.

Ætla skella mér á ströndina í karabíska hafinu í 7 daga og sleikja sólina.
Ekki er komið á hreint hvað ég geri svo eftir það.
Er að bíða eftir e-maili frá local mömmu minni á Costa Rica um hvort ég fái volunter work í einhverju national park í norð-austur hluta landsins, ekki langt frá landmærum Nigaragúa. Ef ekkert verður úr því að þá ætla ég að fara fikra mig hægt niður á við til Panama.

Kveðja Ægir
e.s.
Ef Dóri frændi er að lesa þetta að þá vildi ég nú bara láta þig vita að við kíktum á tútturnar fyrir þig og fengum okkur eina könnu :-}.
2 ummæli:
Þessi vika er búin að vera mjög óspennandi í vinnunni því matseðillinn var birtur:
Mánudagur. 15.10.
Pönnusteiktur steinbítur í piparsósu
Þriðjudagur. 16.10.
Ýsa í kókos, grænmeti og karrýsósu
Miðvikudagur 17.10.
Lasagna með snittubrauði og pestó
Fimmtudagur 18.10.
Blandað sjávarréttagratín m/ýsu og rækjum í hvítvínssósu
Föstudagur 19.10.
Cannelone með nauta- og skinkufyllingu
---- Við höfðum því ekkert til að tala um fyrir hádegi !
Ja ha thad er ekkert annad
Skrifa ummæli